Færsluflokkur: Umhverfismál

Við vitum bara svo lítið

Málið er að við vitum bara ekki neitt um líf á öðrum hnöttum, geimskip eða geimverur. Kannski er þetta allt til en fyrir því höfum við bara engar sannanir. Hvað veit ég svo sem.  Hef ágætt ímyndunarafl og það hefur Stephen Hawking greinilega einnig.  Hann hefur svona Innrásin frá Mars ímyndunarafl.

Ef einhverjar geimverur hafa hug á því að ráðast á þennan hnött þá þyrftu þær endilega að fara að drífa sig í því. Mannkynið sjálft er nefnilega á fullu við að gera útaf við boltann með alls kyns mengun og skeytingarleysi. Um að gera þess vegna að flýta sér og taka staðinn yfir til að koma í veg fyrir skeytingarleysið hérna sem mun á endanum gera útaf við allt heila klabbið. 

Þá veit maður það. Geimverur eru stórhættulegar og um að gera að vera ekkert að rétta þeim spaðann, þó svo að þær virki elskulegar eins og E.T.  Hvað gætum við annars fengið í þessu? Það veit enginn og kannski bara aldrei. Einhvern tíma kannski samt eftir að mannkynið er búið að eyða sjálfu sér birtist hérna e.t.v. stærðar geimskip og segir ....æi við vorum of seinir! 


mbl.is Geimverur geta verið varhugaverðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Þórður Guðmundsson

Þórður Guðmundsson þroskaþjálfi

Nýjustu myndir

  • bill cosby 620x480 cemrf
  • ATI-lower-review-polymer
  • ATI-lower-review-polymer
  • download JFK
  • Aretrov

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband