Sódóma og Gómorra

   Við höfðum hérna á Íslandi hreinan Hrunadans þar sem sukk og svínarí fékk að viðgangast og það í mörg ár.  Það er ekki hægt að neita því að það var fullt af fólki sem horfði á þetta og fæstir sögðu nokkuð, aðrir húrra eins og Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, eða ekki neitt til þess að missa ekki vinnuna, sérstaklega í bönkum og fjármálafyrirtækjum. Já já við létum þetta líðast. En það var talað við fólkið sem dansaði í Kirkjunni í Hruna og það skeytti engu um viðvörunarorð. Svo fór að kirkjan sökk ofan í jörðina með manni og mús á jólanótt.  Þar var svo sannarlega sukkað. Svo sannarlega.  Þeir sem sökkva núna með bönkunum er fjöldi manna, af þingi og í fjármálageiranum. Æran hvarf með hruninu hjá mörgum og með rannsóknarskýrslu hjá öðrum. 

Svo var dansað og sukkað eins og í Sódómu og Gómorru. Sérstakt þegar kemur að afhjúpun á soranum þá fer að gjósa og alltaf meira og meira.  Það rignir ösku og brennisteini. Bráðum fer Katla líka að gjósa en það hefur hún ekki gert síðan 1918. Þá verður svo sannarlega fjandinn laus og enginn flýgur neitt í langan tíma.  Þetta er bara svo táknrænt fyrir hversu djúpt var sokkið í syndugt sódómu líferni og svo gýs, og gjallið kemur og sópast yfir allt og það versnar og versnar ástandið.

 Alveg eins og það verður alltaf verra og verra sem maður fær að uppgötva í öllu þessu misferli. 

 

 


mbl.is „Létum þetta líðast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

uppræta hreiðrinn / ekki bara skipta um óværu / hvar eru óværu uppeldisstöðvar glæpa klíku spillingar á Islandi ? hver eru HREIÐRINN ? en auðvita má ræða þetta mjög málefnalega / hvað sega þau , verðum að læra af mistökunum læra af söguni/mistokum ? hafa þessi hámenntuðu kvekindi aldrei litið í bók og aldrei lesið neitt um söguna ? UPPRÆTA umingja óværu glæpa klíku spillingar sóða langættardólga arðráns HREIÐRIN flokkseigandafélögin / þínglýsa kosningaloforðum/stefnuskrá   reglur aðhald viðurlög á manneskjurnar gráðugar breiskar

Ásgeir Gunnarsson (IP-tala skráð) 17.4.2010 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórður Guðmundsson

Þórður Guðmundsson þroskaþjálfi

Nýjustu myndir

  • bill cosby 620x480 cemrf
  • ATI-lower-review-polymer
  • ATI-lower-review-polymer
  • download JFK
  • Aretrov

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband