Níræð kona brýtur gler heima hjá sér

 Níræð kona í Colorado þurfti nýlega að brjótast inn á heimili sitt  eftir að hafa lokað sig úti í hörkufrosti.  Þetta er einkar athyglisverð frétt.  Geraldine Palmer hlýtur að vera við mjög góða heilsu þó öldruð sé.  Ekki stirðnar hún þegar hún fer út í frostið. Þannig er það með margt gamalt fólk að það þolir illa mikinn kulda og ýmsir liðir í líkamanum  geta átt það til að stirðna.   Frú Palmer hefur samt krafta til þess að brjóta gler, á aldri þar sem  fólk margt hvert er komið með göngugrind og hreyfigeta hefur  snarminnkað (og verður enn minni í kulda).    

Þarna úti eru svo hlutir sem höfðu blotnað, ekki frosið nota bene. Sem þýðir að umræddur hlutur hafði ekki verið lengi úti og nógu var það mikilvægt að hún sækti hlutinn sem getur ekki hafa verið langt frá húsinu miðað við aðstæður. Hvernig hluturinn hefur blotnað þarna úti í frostinu er spennandi að spá í. Það má vel varpa fram þeirri getgátu að sennilegast hafi hún verið að baða hvolpinn sinn, hann orðið óþekkur og skoppað út fyrir hússins dyr. Þar með er eitthvað blautt komið út í hörkufrostið sem ekki má frjósa og þarf að bjarga inn aftur.  

 Tveggja metra snjóruðningur kemur ekki í veg fyrir að hún finni exina sem hlýtur að hafa verið vel innan seilingar en ekki einhversstaðar inní geymslu eða skúr þar sem maður geymir oft slíka hluti. Exinni þarf síðan að lyfta þarna úti í kuldanum og slá henni í glugga. Þannig komst frú Palmer inn en þá er samt ekki alveg öll sagan sögð því að þarna er ennþá brotið glerið,  og frost úti; kalt verður inni þegar kuldinn nær að smjúga í gegn og nauðsynlegt náttúrulega að negla hlera fyrir. Vegna snjóskaflsins hefur aðstoð heldur ekki borist alveg strax og þess vegna aðstæður heldur kuldalegar.    Ekki virðist kuldinn samt hafa orðið henni til tjóns sem  eru virkilega ágætt. 

 Eftir sem áður þá er þarna níræð kona sem getur bjargað sér við erfiðar aðstæður, sem er mjög lofsvert. 


mbl.is Níræð braust inn á eigið heimili með öxi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórður Guðmundsson

Þórður Guðmundsson þroskaþjálfi

Nýjustu myndir

  • bill cosby 620x480 cemrf
  • ATI-lower-review-polymer
  • ATI-lower-review-polymer
  • download JFK
  • Aretrov

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 29589

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband