Hefði verið betra að klára dæmið

 

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ætlar að sitja áfram sem oddviti og formaður borgarráðs. Borgarstjórnarflokkurinn styður hann og í sameiningu mun flokkurinn ákveða í sameiningu hver verði borgarstjóri þegar nær dregur.  Þó svo að þetta virki sem ásættanleg niðurstaða fyrir sitjandi meirihluta þá er samt eitthvað sem er ekki gott við þessa niðurstöðu eins og það að hann skuli ekki ná að klára dæmið og naglfesta strax hver verði borgarstjóri eftir ár.  Hefði t.d. ekki verið gott fyrir flokkinn að segja að í ljósi atburða liðinna vikna þá hefði verið ákveðið að Hanna Birna tæki stólinn að ári?   Þar með myndi nefndur sitjandi meirihluti í borgarstjórn ná að sýna þann styrk sem hann þarf nauðsynlega á að halda einmitt núna.  Eftir ár hins vegar gæti Vilhjálmur sjálfur átt eftir að gefa kost á sér og sækjast eftir embættinu. Vilja borgarbúar fá hann í embættið? Vilja borgarbúar bíða í heilt ár eftir því að fá að vita hvort Vilhjálmur verði aftur borgarstjóri?  

Ef heldur áfram sem horfir að sitjandi meirihluti haldi áfram að vera í þvílíkum blússandi vandræðum eins og þeir hafa verið undanfarið með Vilhjálm í fararbroddi, þá er ekki sökum að spyrja að Sjálfstæðisflokkurinn gæti goldið virkilegt afhroð í næstu borgarstjórnarkosningum. 


mbl.is Ákvörðun síðar um borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórður Guðmundsson

Þórður Guðmundsson þroskaþjálfi

Nýjustu myndir

  • bill cosby 620x480 cemrf
  • ATI-lower-review-polymer
  • ATI-lower-review-polymer
  • download JFK
  • Aretrov

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 29594

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband