Þetta er ómerkileg frétt!

Rhianna  Þessi stúlka er svoleiðis gullfalleg og með þann frábæra hæfileika að geta sungið á heimsvísu.  En svo þarf hún endilega að vera með manni sem er ekki góður við hana og vesen bara.  Þvílík hörmung að lenda í heimpressunni vegna einhvers sem skeður inná baði hjá manni.  Nóg um það.

Það eru einhverjar nektarmyndir af konunni í dreifingu á netinu. Mig langar ekkert til þess að sjá þær.  Það er ekkert mál að taka haus af einni mynd og skeyta yfir á aðra þannig að það líti út fyrir að um einu og sömu konuna sé að ræða. Það hefur marg oft verið gert.  Það er ekki nóg fyrir suma að dástað því hvað þessi stúlka er í rauninni falleg. Það þarf líka að eltast við aðra líkamsparta hjá henni.

Meðal paparazzi ljósmyndara er til ákveðin smekkleysa; í raun heilmikil smekkleysa, en það er sú viðleitni að sitja fyrir stjörnunum og gera sé far um að taka myndir uppundir eða þar sem sést í bert og fá góðar fjárhæðir fyrir.  Eða þá að stilla sér upp í nærliggjandi húsi og reyna að ná myndum "inn"  í einkarými stjörnunnar.  

Gwyneth Paltrow lenti í því fyrir mörgum árum að hún var stödd upp á svölum allsnakin með kærastanum sínum og svo var paparazzi maður á þakinu hinum megin að taka myndir.  Þær myndir eru til - einhvers staðar á netinu.  Dæmi um alveg ótrúlega smekkleysu. 

Hvernig tilfinning ætli það samt sé að vita af nektarmyndum af sjálfum sér í dreifingu út um allan heim? Sem vekja athygli milljóna manna, sérstaklega líka vegna þess að maður er frægur, sætur og hæfileikaríkur. Spyr sá sem er yfirhöfuð ekki þekktur á þessu skeri ;) 


mbl.is Rihanna nakin á netinu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæhæ,smá innlitskvitt héðan úr firðinum

Marín (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórður Guðmundsson

Þórður Guðmundsson þroskaþjálfi

Nýjustu myndir

  • bill cosby 620x480 cemrf
  • ATI-lower-review-polymer
  • ATI-lower-review-polymer
  • download JFK
  • Aretrov

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 29595

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband