Þessi maður fékk einu sinni hina íslenzku fálkaorðu

Eitt er að vera beðinn um að mæta í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara en að vera eftirlýstur af Interpol, það er sérlega vont.  Þar með er æran farin veg allrar veraldar út um öll lönd og það þó svo að hann yrði ekki dæmdur.  Ferlega vont hreinlega fyrir æruna og  þá er betra að hafa heitið Magnús Guðmundsson og farið bara beint inn.  En að hafa verið eftirlýstur svona hefur í för með sér  afskaplega óspennandi stimpil svo meira sé nú ekki sagt. Ekki það að ég vorkenni manninum, síður en svo. 

Svo er það annað mál sem mig langar meira til þess að tala um hér en það er að þessi maður fékk einu sinni hina íslenzku fálkaorðu. Leiðin lá víst á Bessastaði einhverntíma fyrir hrun og þar var hann sæmdur þessari orðu fyrir framgöngu sína í viðskiptum og útrás eða hvernig sem það var nú orðað. Mitt mat er það að sú ákvörðun forseta Íslands hafi verið slæm mistök. Reyndar hvíslaði lítill fugl því að mér að Sigurður hafi verið beðinn um að skila orðunni en Sigurður hafi neitað þeirri bón. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.  

Sem breytir því ekki að eftir þetta þá langar mig ekkert til þess að vera sæmdur fálkaorðunni fyrir eitt né neitt. Mér finnst full frjálslega hafa verið farið með veitingu á þessari orðu í tíð Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta. Þegar veittar eru fálkaorður og stórriddarakrossar þá finnst mér að það eigi að gæta virðingar gagnvart slíku og að þær séu veittar að vel yfirlögðu ráði. Þegar stökkið er til og orða fest á einhvern sem gengur vel að eignast peninga þetta árið, þá er ekki verið að gæta virðingar gagnvart þessari heiðursgjörð að mínu mati. Það gerir orðuna heldur ekki eftirsóknarverða fyrir aðra.   

 


mbl.is Interpol lýsir eftir Sigurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dingli

Mín skoðun er sú, að ÓRG eigi að setja af á stundinni. Krafa um slíkt væri orðin hávær í dag, ef hann hefði ekki bjargað ærunni um stundar sakir, með því að hafna Icesave. Hann var hreinlega "Gunnfáni" glæpagengisins, sem hafði hann með í einkaþotunum þegar farið var í ránsferðir vítt og breitt um heiminn.  

Dingli, 12.5.2010 kl. 06:46

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Það var fálkaorðunefnd sem veitt honum orðuna ekki forsetinn segja rétt og sat frá.

Rauða Ljónið, 12.5.2010 kl. 07:32

3 Smámynd: Þórður Guðmundsson

Nei, forsetinn ber höfuðábyrgð á þessu. Hann sæmdi Sigurð orðunni.

Þórður Guðmundsson, 12.5.2010 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórður Guðmundsson

Þórður Guðmundsson þroskaþjálfi

Nýjustu myndir

  • bill cosby 620x480 cemrf
  • ATI-lower-review-polymer
  • ATI-lower-review-polymer
  • download JFK
  • Aretrov

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 29592

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband