YouTube ekki alls staðar vinsælt

YouTube.com er ekki leyfileg vefsíða hvar sem er í heiminum.  Nú hefur Pakistan ákveðið að loka aðgangi að YouTube á grundvelli þess að á síðunni sé efni sem sé móðgun við íslam.    Vel getur verið að  Pakistan fái að njóta  þess að skoða YouTube aðeins lengur á grundvelli þess að dónalega efnið verði fjarlægt, en  fjöldi landa hafa hins vegar bannað YouTube; þar á meðal  Brasilía,  Kína,  Íran,  Marókkó, Sýrland, Búrma og Tailand.  Ástæðurnar eru ekki allar þær sömu. Írönum finnst vera siðferðisbrestur í þessu á meðan Brasilíubúar sjá þetta sem vandræðalegt fyrir vel þekkt fólk þar í landi.  Í Pakistan aftur á móti segja sumir hverjir að á YouTube sé að finna efni sem sé skaðlegt fyrir börn.

 Það eru ekki nema ca. 3 ár síðan YouTube fór af stað og núna spannar þetta net allan heiminn. Allir geta nú sett inn heimagert vídeó af sjálfum sér eða einhverju sem þeir tóku myndir af.  Það þarf þó ekki að leita lengi til að finna upptökur, þar sem talsmenn íslam er að tala gegn kristinni trú, kristnir menn eru að fjalla um kristna trú eða trúleysingjar eru að tala um það hvað kristin trú sé vond. Nóg er af alls konar boðskap gegn hinu og þessu og til þess að finna þannig efni þarf ekki endilega að fara og leita í search. En þegar svo skopmyndir af Múhameð spámanni fara að birtast þarna, þá er ekki sökum að spyrja að einhverjir í arabaheiminum verði alveg brjálaðir.    

YouTube er vissulega skemmtilegur vefur og sömuleiðis bloggið með öllu sínu blaðri og stundum alveg hrikalegu skítkasti.  Það eina sem er við þetta, er að þetta allt saman getur á stundum virkað svo hamslaust og brjálað, að öðru hvoru hleypur fólk um emjandi og æpandi.   Eiginlega í hverri viku, og það á Íslandi, ekki bara í Pakistan.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórður Guðmundsson

Þórður Guðmundsson þroskaþjálfi

Nýjustu myndir

  • bill cosby 620x480 cemrf
  • ATI-lower-review-polymer
  • ATI-lower-review-polymer
  • download JFK
  • Aretrov

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband