11.2.2011 | 00:13
Fyrirlestur um Guð í Bókasafni Kópavogs
Þetta er búinn að vera annasamur dagur. Eftir vinnu fór ég beint í að skila bókum og hlusta á fyrirlestur númer tvö um Guð. Í þetta skiptið talaði séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og sem fyrr var salurinn meira eða minna skipaður fólki komið yfir sjötugt. Auður talaði blaðlaust í hartnær þrjú korter og hafði ekkert fyrir því. Fyrirfram hélt ég að hún myndi leggja áherzlu á að tala um kvennaguðfræðina en það gerði hún hins vegar ekki. Fyrir þá sem ekki vita þá stofnaði Auður kvennakirkjuna fyrir einhverjum árum síðan þar sem m.a. er lagt áherzlu á það að kvenkyns nefna Guð. Þannig er í daglegu tali t.d. sagt Hún Guð en ekki Hann Guð.
Auður byggði ræðu sína upp á því að byrja á sköpunarsögunni og síðan þræddi hún sig áfram í gegnum söguna þar til hún var komin að Páli Postula. Hana Guð sjáum við í sögunni, m.a. í því þegar Ísraelsmenn voru 40 daga í eyðimörkinni og Guð sýndi þeim umhyggju og ræktarsemi eins og móðir myndi gera við börn sín.
Það var gaman að hitta Auði þarna, hún er ósköp elskuleg að hitta, vel fróð í guðfræðinni og gaman að hlusta á hana tala. Hún hélt athygli minni allan tímann og veitti mér ekki færi á að láta hugann reika. En það er nú svo að stefna hennar í guðfræðinni hefur ekki verið vinsæl meðal allra. Fyrir mitt leiti þá finnst mér það sjálfum engu skipta hvort sagt er Hún eða Hann. Allt það er aukaatriði miðað við þá staðreynd að sá sem boðar, leiðir, hversu fróður sem hann kann að vera, og meistaralegur í lítúrgíu (helgisiðafræðum) o.s.frv. er hjóm eitt, ef hann hefur ekki hjartað á réttum stað.
...eða með öðrum orðum; það er kærleikurinn sem skiptir mestu máli, ekki einhverjar tiktúrur eða einhverjar sérstakar áherzlur í tengzlum við strauma eða stefnur innan guðfræðinnar.
Að lokum þá er ein staðreynd sem mig langar til þess að nefna fyrir þá sem ekki vita. Séra Auður Eir er fyrsta konan á Íslandi til þess að hljóta prestsvígslu en það var árið 1974.
Síður
Tenglar
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Júlí 2023
- Maí 2023
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.