21.10.2011 | 23:38
Ekki líta undan eftir Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur
Bókin Ekki líta undan er komin út. Það þarf kjark, styrk og talsvert þrek til þess að gefa frá sér þvílíka bók. Á undanförnum árum hefur það færst í vöxt að gefnar hafa verið út bækur eftir konur þar sem þær lýsa þungbærum minningum úr lífi sínu. Skemmst er að minnast bókarinnar Myndin af pabba eftir Thelmu Ásdísardóttur sem gefin var út fyrir nokkrum árum. Sú bók lýsir uppvexti Thelmu í Hafnarfirðinum þar sem faðir hennar misnotaði hana ítrekað sem og um leið systrum hennar.
Bók Guðrúnar Ebbu er af sama toga, nema hvað að faðir hennar var Biskup Íslands. Enginn talaði um það að verið væri að sverta minningu föður Thelmu á sínum tíma en sú umræða hefur hins vegar komið upp varðandi bók Ebbu. Eftir sem áður þá eiga allir sína sögu, sína minningu og sumir eiga ekki skilið lofræður að öllu leiti. Og gagnvart sumum hlutum er ekki hægt að loka augunum. Það verður stundum að horfast í augu við staðreyndir.
Þegar þú lest þessa bók þá færðu engar lýsingar á afbrigðilegri kynlífshegðun. Þú færð ekkert að vita hvað raunverulega skeði í bíltúrum þeirra Ólafs, hvað það var sem hann gerði raunverulega. Mig grunar að sumir vilji ekki lesa bækur af þessum toga einmitt út af því. Það er óþarfi að hafa áhyggjur af því að verið sé að fara illa með lesandann með grófum athafnalýsingum. Hins vegar þá fer talsverður tími í að lýsa Ebbu sjálfri, veikindum hennar og neikvæðri framkomu gagnvart öðru fólki; sem hún hefur þegar beðist fyrirgefningar gagnvart. Og þessi bók er ekki bara eitthvað eitt. Hún er einnig fræðilegs eðlis hvað varðar kynferðisofbeldi, hver séu eftirköst kynferðisofbeldis á líf fólks.
Það er fyrir mér þröngsýn skoðun að segja að falskar minningar ráði för í þessari bók. Það er miklu meira þarna en bara minningarnar. Það eru einnig fjallað ýtarlega um vandamál sem eru bæði sálræn og geðræn. Hvers vegna koma þessu vandamál? Hverju eru þau tengd? Ef um falskar minningar væri að ræða og einvörðungu það, þá myndi vanta tengingar í þessa sögu. Hana verður að skoða sem heild. Það dugar ekki að taka út eitthvað eitt og efast um sannleiksgildið þess vegna.
Ef þú hafðir ánægju af að lesa æviminningar Lindu Pé, Erlu Bolla, Ruth Reginalds og Thelmu Ásdísar, þá er þessi bók eitthvað fyrir þig.
Síður
Tenglar
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Júlí 2023
- Maí 2023
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.