30.9.2012 | 01:07
Dæmi um algera dellu og haugalygi :)
Geltir menn lifa miklu lengur en aðrir menn. Hér áður fyrr á hirðlífistíma keisaraætta þá þurftu menn ekki að hafa svo mikið fyrir lífinu. Allavega ekki eins og hinir sem voru bændur eða í harðari vinnu og sáu um barnauppeldi sem auðvitað hefur verið slítandi eða þeir lögðu í bardaga sem hermenn, þeirra líf hlýtur að hafa verið styttra líka. Líf kvenna hefur einnig verið styttra þar sem að þær þurftu að eignast krakkana og það er erfiðara að stunda svoleiðis heldur en að lifa áhyggjulausu hirðlífi.
Geltir menn lifa ekki neitt endilega lengur en aðrir menn. Sá sem er geltur er ekki með eistu annars telst hann ekki geltur. Í eistunum er framleiðsla testósteróns sem er kynhormón karlmanna. Það hefur verið rannsakað hversu mikilvægt þetta efni er. Án þess geta menn lent í vanda með líkamlegt heilbrigði. Skortur á testósteron getur valdið t.d. þreytu, depurð, minni vöðvamassa og stærri ístru, og hætta er á aukinni beinþynningu. Sem þýðir að áðurnefndir hirðmenn gætu hafa verið þreytulegir, þunglyndir, lítt sterkir, feitir og með léleg bein. Spennandi mannskapur, ekki satt...
Getur verið að gríðarleg fólksfjölgun í heiminum sé farin að þrýsta einhverjum kolvitlausum vísindamönnum af stað í að rannsaka gelt líf karla og um leið eru þeir óbeint að benda á þennan möguleika sem spennandi fyrir einstaklinga sem vilja lifa lengur. Rannsóknin sjálf er auðvitað tóm della en hvað eiga menn að gera þegar allt of mikið er til af fólki og það fer að verða allt of lítið pláss fyrir allan þennan fjölda. Jú um að gera að benda á þennan frábæra möguleika. Hættið að eignast börn og látið gelda ykkur, þar með gætu lífslíkurnar aukist um 15-20 ár eða svo. Vísindamenn ljúga líka að fólki í tíma og ótíma. Sérstaklega að fólki sem trúir öllu því sem að því er sagt.
Geltir menn lifa lengur en aðrir menn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Heilbrigðismál | Facebook
Síður
Tenglar
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Júlí 2023
- Maí 2023
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ert þú ekki maðurinn sem segir Biblíuna sannleikanum samkvæmt?
Jón Steinar Ragnarsson, 30.9.2012 kl. 07:32
Takk kærlega fyrir það að koma með athugasemd hérna Jón Steinar eða réttara sagt spurningu. Þessi vefur hefur legið í lamasessi til lengri tíma og í raun enginn sagt neitt hingað til.
Ég skil annars ekki tilganginn með spurningunni og hvernig hún í raun tengist greininni.
Þórður Guðmundsson, 30.9.2012 kl. 10:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.