15.1.2013 | 19:19
Brotið þjóðfélag
Það er verið að pota í kýlin og hleypa heilmiklum greftri upp. Tímabil afhjúpunar er virkilega hafið og nú hafa verið afhjúpaðir nokkrir illskeyttir menn. Menn sem höfðu komið sér fyrir hingað og þangað. Einn hafði t.d. komið sér fyrir á hóteli um skeið, en annars verið hingað og þangað við iðju sína, þ.e. að misnota annað fólk kynferðislega. Á sama tíma var skólastjóri barnaskóla við nákvæmlega sömu iðju og enn annar notaði tölvuna sína til þess að komast í kynni við börn.
Þetta er þyngra en tárum taki. Þvílík hörmung. Hver verður síðan afhjúpaður næst? Hvar enda allar þessar afhjúpanir? Þær eru vissulega mikilvægar, líka til þess að stemma stigu við þeim alvarlega glæp sem misnotkun er. En svo er annað, sem er hvort að allt tal um kynferðislega áreitni geti farið út í öfgar og langt út fyrir hvers kyns þjófabálk.
Þegar allt mögulegt fer að teljast áreitni, sem var það ekki áður. Eða þegar að þörfin fyrir að afhjúpa hinn illa fer að vera svo mikil að einhver saklaus verður fyrir barðinu á því. Líka þegar karlmenn mega ekki lengur koma nálægt hinu og þessu, eins og ekki yfirhöfuð nálægt börnum annarra, hvar sem er. Sbr. leikskólakennarar í Danmörku mega ekki lengur fara á Wc með börn.
Okkar er að skapa kærleiksríkt þjóðfélag. Við getum að sama skapi búið til óttaslegið þjóðfélag. Þá á ég við þjóðfélag þar sem að ótti hefur læðst svo að fólki að það er stöðugt á varðbergi. Á endalausu varðbergi gagnvart öllu mögulegu eins og bara öðru fólki yfirhöfuð og þá sérstaklega karlmönnum sem eru einir á vappi einhversstaðar. Á varðbergi gagnvart hugsanlegum glæpum og perraskap. Auðvitað þurfum við að vera varkár í lífinu, en hér er ég að tala um því mun meiri ótta við hið vonda.
Hið vonda á heima í skúmaskotum og á erfitt með að horfast í augu við sjálft sig. Pukur og makk í skjóli myrkurs er hinu illa mikilvægt til þess að dafna. Með öllu því sem ekki má komast upp. Leið ljóss og heiðarleika er að gera ekkert sem aðrir mega ekki vita um og vera þekktur fyrir þá viðleitni. Sú leið er góð.
Síður
Tenglar
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Júlí 2023
- Maí 2023
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.