23.5.2023 | 21:42
Góð manneskja eða einfaldlega bara ljúfmenni
Margur myndi halda að góður maður geti einnig verið ljúfmenni og á því sé í raun enginn munur. Því verður þó neitað í þessari grein út frá ákveðnum gefnum forsendum en samt ekki svo að um eitthvað svart og hvítt sé að ræða né heldur að ekki sé til einhverjar undantekningar þar sem þetta tvennt geti ekki farið saman.
Ljúfmennið, hvort heldur sem það er karl eða kona, er manneskja sem í rauninni kýs það að lifa innan ákveðins þægindaramma. Ljúfmennið er ekki baráttumanneskja fyrir neinu. Aðalatriðið er komast hjá því að lenda í átökum, rifrildi og öllu veseni yfirhöfuð. Það er ekki staðið með sjálfum sér nema síður væri, betra sé að lúffa en að standa á sínu, og það er ekki staðið með öðrum vegna þess að það gæti þýtt eitthvað óþægilegt ferli sem betra væri að komast hjá. Fyrir vikið verður ljúfmennið óheiðarlegt gagnvart sjálfu sér vegna þess að það stendur ekki fast á neinni skoðun og óheiðarlegt líka vegna þess að það er líka að samþykkja síðasta ræðumann og enginn veit þannig hvar ljúfmennið í rauninni stendur. Og það gerir ljúfmennið varla sjálft. Þó svo að æpandi óréttlæti sé í gangi gerir ljúfmennið ekkert (þó það sé í góðri stöðu til þess) vegna þess að það vill ekki lenda í vandræðum. Þannig geta slæmir hlutir gerst vegna þess ljúfmennið gerir ekkert til það að berjast gegn því.
Svo er það að hinn góði maður. Hér höfum við týpu sem er til í það að fara út fyrir þægindarammann og berjast fyrir réttlæti í hvaða mynd sem er. Góði maðurinn (eða konan) er til í átök og veigrar sig ekki við að taka þátt í slíku. Hann stendur fast á sínu og skiptir ekki um skoðun þótt að aðrir séu ósammála honum. Það er staðið með sjálfum sér í hvívetna og með öðrum líka eins og réttlætiskenndin býður hverju sinni. Í því öllu þá kann þessi týpa að virka hörð, ákveðin, ekkert endilega indæl, og allt eins hálf óþolandi áður en hún fær sitt í gegn eftir harða baráttu. Ef þú spáir í því þá er fullt til af svona fólki í mannkynssögunni ef vel er að gáð. Gott dæmi um einn slíkan er einfaldlega Jesús Kristur.
Svo er annað mál að við viljum oft á tíðum velja það sjálf hvaða stríð við viljum fara útí eða að einhverju leiti taka þátt í, og við ákveðum þess vegna líka á stundum að kannski sé best akkúrat núna að vera bara innan einhvers þægindaramma, betra sé að hafa sig ekki í frammi á einhverjum augnablikum og þar fram eftir götunum. Þess vegna getur margur sveiflast á milli anda ljúfmennis og þess að vera baráttumanneskja. Hinu verður samt ekki á móti mælt að það er líka fullt til af fólk sem er bara annað hvort góðar manneskjur eða einfaldlega bara ljúfmenni.
Síður
Tenglar
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Júlí 2023
- Maí 2023
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Þórður. Mér finnst þessi pistill snerta á mikilvægu málefni, og mikilvægt er þetta og að fólk skilji þetta, en orðalagið hjá þér er kurteislegt og ekki mjög afdráttarlaust. Það hefur hver sinn stíl.
En mér datt í hug eftir að ég las þetta og hafði velt þessu fyrir mér, að þetta minnir mig á rithöfundinn Emanuel Swedenborg, sem skrifaði um guðfræði og fleira. Hann notaði miklu sterkari orð um þetta. Hann kallaði það "elskuna til sjálfs sín og heimsins" að fara ekki út fyrir þægindarammann, eða þannig skildi ég hann.
Mér finnst gott að þú sért aftur virkur hér. Þekki þig ágætlega og veit að þú ert góður spekingur þegar þú vilt.
Gott að vekja á þessu athygli.
Ingólfur Sigurðsson, 25.5.2023 kl. 02:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.