2.6.2008 | 12:24
Sammála. Rúv taki þessa kvörtun til greina.
Það er hárrétt ákvörðun hjá Félagi heyrnarlausra að kvarta undan því að táknmálsfréttir voru felldar niður á fimmtudaginn. Heyrnarlausir ættu aldrei að verða útundan á meðan verið er að miðla mikilvægum fréttum og í rauninni ekki yfirhöfuð hvort sem fréttir eru mikilvægar eður ei. Táknmálsfréttir taka ekki mjög langan tíma í dagsskránni á degi hverjum og það hefði verið fínt ef heyrnarlausir hefðu fengið sitt þetta kvöld líka. Hvers vegna ekki? Einhverjar 10 mínútur í dagsskránni hefði ekki skaðað nokkurn hlut í sjálfu sér. Og það hefði vel verið hægt að hagræða hlutunum með því að ...
... benda öðrum áhorfendum á að fylgjast með mikilvægum upplýsingum á Rás 2 á meðan; að setja inn borða á skjánum hjá táknmálinu með mikilvægum upplýsingum og skilaboðum til fólks eða að setja inn lítinn kassa í öðru hvoru horninu (hjá Boga t.d.) og láta túlk koma þar inn á einhverjum áætluðum tíma. E. t. v. eru einhverjir fleiri möguleikar til sem vert er að skoða í þessu sambandi.
Leyfum heyrnarlausum að vera með í okkar samfélagi þannig að þeir hafi fulla rödd til jafns við okkur hin sem höfum heyrn.
Ósátt við að táknmálsfréttir féllu niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Síður
Tenglar
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Júlí 2023
- Maí 2023
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
túlkurinn hefði getað verið kallaður út og hreinlega setið við hliðina á Boga :)
Nosy (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 14:07
Þetta er í raun og veru ekki svo flókið í framkvæmd, en er samt sem áður eitthvað sem hvorki Rúv né íslenska ríkið hefur viljað leggja fjármuni í og framkvæma. Aðrir eru allir að vilja gerðir held ég að ég geti fullyrt. Það sama á við um textun íslensks efnis í sjónvarpi. Og það er líka eitthvað sem nýtist svo mörgum öðrum en bara heyrarlausum, t.d. (gömlu) fólki sem er að missa heyrnina, útlendingum sem eru að læra íslensku og börn sem eru að læra að lesa. Þetta er spurning um viðhorf- og eins og alltaf: peninga.
túlkur (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 15:35
Takið eftir því að einungis er sjónvarpsefni, t.d. fréttir, heimildamyndir og annað textað á síðu 888 ef það tengist fötluðum. Getur verið að heyrnarlausum og öðrum með einhverja fötlun komi ekkert við nema efni tengt þeirra ástandi ? Er dýrara að texta íslenskt efni en erlent ?
Í lokin: Telja menn útilokað að heyrnarskert eða heyrnarlaust fólk eigi ættingja eða vini á skjálftasvæðunum og vilji vita af þeim ?
Anna (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 22:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.