Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
27.1.2009 | 19:40
Athyglisvert
Frábært að búa til mynd um Tinna. Það hefur verið gert áður fyrir ca. 30 árum eða svo. Tinni og bláu appelsínurnar hét hún. Minnir það. Eitthvað flopp sem enginn man eftir, nema hvað gefin var út bók samkvæmt myndinni. Hvað hitt varðar þá getur ekki verið að Jamie Bell í hlutverki Tinna sé að fara að leika beinlínis í senum með Daniel Craig. Samkvæmt sögunum um Tinna þá tilheyrði Rögnvaldur 17.öld eða eitthvað álíka og það var forfaðir Kolbeins Kafteins sem hitti hann. Þannig að aldir og ár skilja að þetta illmenni Rögnvald og Tinna. Spennandi eða þannig. Á að búa til spennumynd fyrir fullorðna úr þessum barnabókum?
![]() |
Craig leikur illmenni í Tinnakvikmynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2009 | 17:04
Með almennilegum vettlingatökum
En hvað það er gaman stundum að fylgjast með Alþingi. Þeir eru misgóðir ræðumennirnir. Höskuld Þórhallsson hefur aldrei birst mér áður; vissi ekki að hann væri á þingi. Mikið hvað hann minnti mig á Martein Mosdal áðan. Þetta kom: Það verður að taka á þessu með almennilegum vettlingatökum! Þá hló þingheimur. Nei fyrirgefiði. Það duga engin vettlingatök. Ætli Spaugsstofan grípi þetta ekki? Það verður allavega nóg efni handa þeim fyrir laugardag.
21.1.2009 | 11:54
Ræðumaðurinn Obama
Það var einkar athyglisvert að fylgjast með Barrack Obama í gær meðan hann hélt ræðu sína við Þinghúsið í Washington. Eitt af því sem vakti athygli var að hann var alveg óbundinn af pappír. Ræðan virtist ekki á neinn hátt vera skrifuð frá orði til orðs né heldur virtist hann horfa í neina textavél.
Obama var öruggur í ræðustól og notaði hendurnar lítið til áherslu en náði alveg til fjöldans. Samt var þetta engin stjörnuræða. Þessi ræða var nokkuð löng en ekkert afgerandi nýtt í henni. Líklega höfum við þarna góðan ræðumann og betri ræðumann en Bush nokkurn tíma. Spennandi verður bara að sjá hvernig hann reynist sem forseti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Síður
Tenglar
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Júlí 2023
- Maí 2023
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar