Ræðumaðurinn Obama

 

Það var einkar athyglisvert að fylgjast með Barrack Obama í gær meðan hann hélt ræðu sína við Þinghúsið í Washington.  Eitt af því sem vakti athygli var að hann var alveg óbundinn af pappír. Ræðan virtist ekki á neinn hátt vera skrifuð frá orði til orðs né heldur virtist hann horfa í neina textavél.  

Obama var öruggur í ræðustól og notaði hendurnar lítið til áherslu en náði alveg til fjöldans. Samt var þetta engin stjörnuræða.  Þessi ræða var nokkuð löng en ekkert afgerandi nýtt í henni. Líklega höfum við þarna góðan ræðumann og betri ræðumann en Bush nokkurn tíma. Spennandi verður bara að sjá hvernig hann reynist sem forseti.  


Mjög góðir tónleikar

Það var afar skemmtilegt að vera á þessum tónleikum. Margt eftirminnilegt. Páll Rósinkranz kom fram fyrstur með lagið Bíddu Pabbi og svo komu listamennirnir fram hver á fætur öðrum. Hver öðrum betri. Þvílíkt samansafn af góðum söngröddum.  Lay Low var t.d. mjög eftirminnileg með gítarinn þegar hún söng Svefnljóð og Laddi var alveg stórskemmtilegur. Þvílík stemmning. Atriðið með Jónsa og Jóhanni er samt einna eftirminnilegast vegna þess að Jónsi byrjar lagið en síðan tekur Jóhann sonur Villa við. Hann er greinilega með sömu söngrödd og pabbinn!  

 


mbl.is Mikil ánægja með minningartónleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkur sljóleiki!

Það er vel hægt að koma með nokkur vel valin orð í tengslum við þessa frétt. Eitt þeirra er sinnuleysi. Að vita af því að það liggur þarna kona á gólfinu, hreyfingar- og bjargarlaus, en nenna ekki að sinna því. Annað er áhugaleysi. Að vita af þessu, en vera bara alveg sama.  Sinnuleysi og áhugaleysi má síðan setja undir einn hatt aðgerðarleysis þar sem sljóleiki er við völd.  Það er ekki flókið mál að bregðast við þegar einhver dettur í gólfið.  Því miður fyrir konuna sem varð fyrir því, þá var bara sinnulaust, áhugalaust, aðgerðarlaust, ábyrgðarlaust og sljótt fólk á staðnum sem að öllum líkindum hefur vonað að einhver annar brygðist við. Þegar allir hugsa þannig, þá gerist náttúrulega ekki neitt.
mbl.is Látin kona lá afskiptalaus í klukkutíma á biðstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér lýst ekkert á þetta!

Þetta er klárlega vísir að heimsstyrjöld. Ef Bandaríkjamenn ráðast á Íran þá munu þeir ekki byrja á því að senda vopnaðar sveitir inn í landið. Íran er auk þess margfalt stærra svæði en Írak. Það stöðvar samt kanann ekki. Þeir munu nota kjarnorkuvopn og rústa þannig landinu. Ekki að það verði risastór sveppaský út um allt. Þessi vopn eru orðin það háþróuð að þau eru til í öllum stærðum; skotið beint úr kafbátum í flóanum, og tölvustýrt á skotmörk. Hvað veit maður svo hvort Íranir séu ekki þegar komnir með kjarnorkuvopn sjálfir? Og Ísraelar munu síðan dragast inn í þetta....og síðan þau ríki sem styðja Írani...og allt fer í bál og brand í Miðausturlöndum.  Kannski verður bara George W. Bush síðasti forseti Bandaríkjanna fyrir vikið!? Hver veit... ?

 


mbl.is Hernaður gegn Íran í undirbúningi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot úr degi

Yndislegt veður í dag í Reykjavík. Sól og 16 stiga hiti. Skrapp í bæinn seinnipartinn að skila bók og ætlaði kannski að taka aðra að láni. Fann samt ekkert spennandi.  Þar með lá leiðin eitthvað annað. Ís með dýfu og labba svo áfram. Austurstrætið og síðan inn á Hressó.  Æðislegur staður Hressó. Notalegt að setjast þar niður og horfa á mannlífið út um gluggann. Annars vakti meira athygli mína grein í Nýju Lífi um Ólaf Darra leikara. Skemmtileg grein; gaman að lesa um þennan bráðskemmtilega leikara. Darri er góður leikari og alltaf gaman að sjá hann leika, hvort sem það er í sjónvarpsmyndum, bíómyndum eða á sviði.

Fékk mér samt ekkert á Hressó, aldrei þessu vant. Fæ mér vanalegast kakó með röri á þessum stað. 

Á leiðinni heim... heyrði af því í útvarpinu.  Mikið hvað íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er frábært. 7 - 0 sigur á móti Grikkjum. Ekkert smá hvað þær eru frábærar. Til hamingju með sigurinn :)  


16.000 manns í salnum, ungur prédikari og enginn kross á sviðinu!

60 mínútur sýndi í gær frétt þar sem fjallað var um prédikarann Joel Osteen. Hann er að mörgu leyti athyglisverður.  Salurinn hans er í Houston og er fyrrverandi körfuboltavöllur sem rúmar um 16000 manns. Svo er sjónvarpað frá samkomum  hans og á þær horfa nokkrar milljónir.  Boðskapurinn? Jú hann er í formi þess sem kallað hefur verið prosperity message.  Sá boðskapur er þannig að þeir sem hafa fundið endurlausn fyrir tilstilli kristinnar trúar, fái í staðinn auð og ríkidæmi.

Hvað með fólk sem býður og biður og fær aldrei neitt? Osteen var spurður að því. Jú, hann sagðist hjálpa fólki til þess að komast með jákvæðu hugarfari í gegnum erfiðleikana í lífinu. Svo vildi hann einfalda boðskapinn eins mikið og hægt væri.  Sykurpúða-guðfræði hefur guðfræði hans verið kölluð. Sérstaklega vegna þess að hann er ekkert að fjalla um synd, þjáningu eða dóm. Það er allt svo ofsalega jákvætt einhvernveginn  og ef þú elskar Guð og ef Guð elskar þig á móti, þá muntu bera mikinn ávöxt og blómstra. Einhverjum kann að finnast þetta einum of einfalt. Þannig er bara þessi boðskapur. Hann er ekkert flókinn og á bara heima í Bandaríkjunum (kannski í Kanada líka). Merkilegt hvað mönnum tekst síðan að fylla heilu fótboltavellina með jafn einföldum boðskap. Já, já, svo stórgræða menn á þessu og það veit enginn hversu gróðinn er mikill. Trúarstofnanir í Bandaríkjunum eru víst alveg lausar við skattayfirvöld og það þarf ekkert að gefa neitt upp. 

Aumingja blessuð litlu börnin í Afríku... 

 


Sammála. Rúv taki þessa kvörtun til greina.

Það er hárrétt ákvörðun hjá Félagi heyrnarlausra að kvarta  undan því að táknmálsfréttir voru felldar niður á fimmtudaginn. Heyrnarlausir ættu aldrei að verða útundan á meðan verið er að miðla mikilvægum fréttum og í rauninni ekki yfirhöfuð hvort sem fréttir eru mikilvægar eður ei.  Táknmálsfréttir taka ekki mjög langan tíma í dagsskránni á degi hverjum og það hefði verið fínt ef heyrnarlausir hefðu fengið sitt þetta kvöld líka. Hvers vegna ekki? Einhverjar 10 mínútur í dagsskránni hefði ekki skaðað nokkurn hlut í sjálfu sér. Og það hefði vel verið hægt að hagræða hlutunum með því að ...

... benda öðrum áhorfendum á að fylgjast með mikilvægum upplýsingum á Rás 2 á meðan;  að setja inn borða á skjánum hjá táknmálinu með mikilvægum upplýsingum og skilaboðum til fólks eða að setja inn lítinn kassa í öðru hvoru horninu (hjá Boga t.d.) og láta túlk koma þar inn á einhverjum áætluðum tíma.   E. t. v. eru einhverjir fleiri möguleikar til sem vert er að skoða í þessu sambandi. 

Leyfum heyrnarlausum að vera með í okkar samfélagi þannig að þeir hafi fulla rödd til jafns við okkur hin sem höfum heyrn.  

 


mbl.is Ósátt við að táknmálsfréttir féllu niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er þetta hægt!

Þessi frétt er alveg ótrúleg. Heimilislaus kona hreiðrar um sig í skáp! Það getur ekki hafa verið mikið rými.  Var konan þá í sömu fötunum allan þennan tíma og þurfti ekkert að þvo af sér? Ekki hafa hrotur eða önnur hljóð borist úr skápnum meðan hún lá þar í svefni!? Eða þegar henni hefur allt í einu orðið mál. Hvernig fór hún að því að skutlast á salernið án þess að húsráðandinn vissi? Eða í ísskápinn?  Ekki það að hann hafi komið óvænt heim og þessi kona hafi þá verið í baðkarinu hans! Né heldur að hann hafi verið að brölta á næturna og rekist óvart á konuna. Það er greinilegt auk þess að maðurinn hefur ekki kíkt í þennan skáp né heldur að hann hafi þurft á honum að halda allt sl. ár. Á sama tima hverfur brauð og allt mögulegt úr ísskápnum. Hvernig stendur á því að maðurinn er heilt ár að kveikja á perunni? Undarlegt mál.
mbl.is Fann konu í skápnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göngutúr í rigningu og vangaveltur um bók Eckhart Tolle - A New Earth.

Göngutúrinn í rigningunni geymdi fjölda augnablika þar sem hugsað var um þessa einu bók. Hundurinn skoðaði á sama tíma allan þann gróður sem náð hafði að fanga athygli hans. Hann þefaði, skoðaði betur, pissaði á völdum stöðum og hélt svo áfram í áttina að næsta áhugaverða stað. 

Hugurinn er brjálaður segir Tolle. Hann æðir áfram í sífelldri þörf fyrir allt það sem hann telur að fullnægi þörfum hans, en hann getur ekki staldrað við og notið augnabliksins eða þess að njóta þess einfalda í náttúrunni. 

Hundurinn nýtur þess að staldra við og skoða. Þessi stóri brúni íslenski rakki með hringaða skottið sem er ekkert að spá í því að hann sé að þefa af blómi sem óx um daginn og deyr kannski á morgun.  Né heldur er hann að velta því fyrir sér að þarna sé eitthvað sem hafi eitthvert heiti meðal manna.  Eins og það í rauninni skipti nokkru máli. 

Bókin hans Tolle er aftur og aftur í huga mínum. Tolle hefur bókina á því að tala um fyrsta blómið sem varð til fyrir einhverjum milljónum ára. Eitthvað sem upplifði sólarupprás og sólarlag. Upphaf eilífrar hringrásar sem nær til okkar dags. Og í nútímanum höfum við heiti yfir fleiri þúsundir plantna og öll hafa þau einhver latnesk heiti sem helst má finna í uppflettiritum. Tolle er alveg sama um nöfn. Þau trufla alla upplifun. Það er miklu betra að staldra við og upplifa, finna ilm eða mýkt eins og mýktina af rósablaðinu. Gleyma sér síðan og vera bara.

 


Eckhart Tolle. A New Earth.

Það var kvöld eitt í apríl eftir leikhúsferð að mér var gefin bók. Það var nokkuð hlýtt veður en aðeins tekið að skyggja í einu af þægilegri hverfum þessa heims, hverfinu þar sem allt er alltaf svo rólegt og laust við asa og læti. Þar var mér gefin þessi gjöf frá frænku minni sem á heima í útlöndum. Þetta skyldi vera eins konar skilnaðargjöf þangað til við hittumst næst.  Úr bréfinu kom appelsínugul bók eftir Eckhart Tolle sem heitir A New Earth. Láttu mig vita hvað þér finnst um þessa bók sagði frænka mín við mig um leið og hún kvaddi mig. Fylgi þér alltaf farsældin. 

Tolle! Kom upp í huga minn. Maður sem er á fullu við að segja viturlega hluti. Aðallega í míkrafón. Það er hægt að finna hann á Youtube þar sem hann situr á stól og talar rólega til fólks. Í lengri tíma. Aleinn og enginn með honum.  Mér hafði verið bent á þennan mann einu sinni áður. Það var sl. vetur og þá var kveikt á honum í smástund og slökkt á honum nánast jafnharðan. Svo varð einnig um þessa bók að hún fékk að vera óáreitt í hillu þangað til í fyrir þrem dögum að smá uppgötvun leiddi mig til hennar aftur. 

anewearth_cover_90x90Þetta er bók sem maður les hægt. Suma kafla oftar en einu sinni. Án þess að grípa allt hrátt sem Tolle segir þá er margt mjög athyglisvert. Hann er t. a. m. með ágætan skilning á orðum Krists og hugmyndir hans eru djúpar og hann sér hlutina út frá ákveðinni rósemd. Okkur hættir víst til að vilja fara of hratt og að við náum ekki að njóta augnabliksins. Kannski að það eigi einmitt erindi til nútímamannsins sem alltaf er á fleygiferð og finnur sér aldrei stund til að staldra við vegna þess að það er alltaf svo mikið að gera og í svo mörg horn að líta. 

Youtube. Þar er Eckhart Tolle að tala í míkrafóninn sinn og það oftar en einu sinni. Þar er hann reyndar einnig að gera svolítið annað. Sem kom nokkuð á óvart og varð kveikjan að meiri áhuga hjá mér. Hann er víst í miklu uppáhaldi hjá Oprah Winfrey og þau eru með kennslustundir saman sem hófust í mars og stóðu samfleytt í 10 vikur.  Sem þýðir að það er hægt að sitja nokkuð lengi við tölvuna og fylgjast með kennslustundum þar sem þau tvö sitja í hvítum hægindastólum, spjalla um bókina og svara spurningum frá hlustendum. Það er samt með þetta eins og svo margt annað. Hvernig borðar maður fíl?  Með því að taka einn bita í einu. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórður Guðmundsson

Þórður Guðmundsson þroskaþjálfi

Nýjustu myndir

  • bill cosby 620x480 cemrf
  • ATI-lower-review-polymer
  • ATI-lower-review-polymer
  • download JFK
  • Aretrov

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband