22.12.2009 | 02:47
Þvílíkur fíflagangur!
Karlmaður sem tekur þátt í fegurðarsamkeppni, vinnur og reynir að brosa í gegnum tárin er ekki spennandi. Hvurslags atgervi er þetta eiginlega? Mér finnst ekkert varið í svona lagað. Það er sem er spennandi er alvöru kynþokki. Tökum sem dæmi Sean Connery. Alveg einstaklega sjarmerandi maður. Þvílíkt hvað sá maður er loðrandi í kynþokka. Stórglæsilegur alveg hreint. Hvers vegna ekki að velja hann fallegasta karl heims (ábyggilega búið að því margsinnis) í staðinn fyrir að vera með þennan fíflagang.
Eru ekki annars fegurstu karlmenn veraldar bara einhverjir asnar sem vinna á verkstæðum eða skurðgröfum einhversstaðar, sem síðan koma heim angandi af svitafýlu og skítugir uppyfir haus? Drullusokkar sem aldrei hafa lagt það á sig að læra neitt sérstakt en hafa komist áfram með frekju og yfirgangi, hnefa og leiðindum, rífandi kjaft alveg endalaust, reykjandi og spúandi ásamt tilheyrandi áfengisdrykkju. Mennirnir sem fjöldinn allur af kvenfólki vill þefa uppi og eiga til þess að bjarga frá bulli og vitleysu, og geta það síðan ekki af því að þeir eru svo eigingjarnir, durtslegir og þverir en samt svo ofboðslega fallegir, burtséð frá öllu öðru. Með tímanum safna þeir síðan ístru og nenna ekki að hreyfa sig og alls ekki til að þrífa eitt né neitt. Þvílíkum árangri mun þessi ungi Bolivíumaður aldrei ná nema aðeins fyrir þær sakir að svoleiðis og þannig hrikalegur asni leynist í honum. En hann virkar bara ekki þannig. Hvernig í ósköpunum á íslenskt kvenfólk til dæmis að geta fallið fyrir svona manni? Sem grætur eftir fegurðarsamkeppni!
Fallegasti maður í heimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Síður
Tenglar
Mínir tenglar
Eldri færslur
- Júlí 2023
- Maí 2023
- Desember 2014
- Júlí 2014
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Mars 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Febrúar 2012
- Desember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er svo hjartanlega samála, fallegustu karlmennirnir eru skúrðgröfu- og verkstæðiskallarnir, það er eitthvað svo sexy við grófleikan.
Og ef þetta er standardinn yfir fegurð, mikið ofboðslega er veröldin orðin firrt.
Þórhildur Daðadóttir, 22.12.2009 kl. 08:24
Sammála þér í fyrstu, en eru þetta ekki frekar svæsnar alhæfingar þegar líður á seinni partinn? Stórlega efast um að allt verkafólk séu forheimskir durgar. Margir eru til að mynda vel gefið fólk að safna sér fyrir námi.
En nokkuð sammála þér þó hvað varðar fegurðarsamkeppnir, sama hvort kynið á í hlut.
Einar J (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.